Brekkubćjarskóli
Vesturgötu 120
300 Akranesi
Sími: 433 1300
Fax: 433 1301
www.brak.is
skrifstofa.brak@akranes.is
Leita

Brekkubćjarskóli

 

Nemendur í 1.SŢ 2007-8 stilla sér upp í stiga gömlu byggingar skólans.
Brekkubćjarskóli er annar tveggja heildstćđra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 430 talsins, en starfsmenn tćplega áttatíu. Tíu bekkjadeildir eru í Brekkubćjarskóla, tveir bekkir í hverjum árgangi ađ jafnađi, en ţrír í fjölmennustu árgöngunum (6. bekkur 2008-9). Ađ auki státar skólinn af öflugri sérdeild og ţéttriđnu neti stođţjónustu. Skólastjóri Brekkubćjarskóla er Arnbjörg Stefánsdóttir. 

 

Lífsleiknistefna Brekkubćjarskóla
Haustiđ 2001 var tekin upp skólastefna í Brekkubćjarskóla sem ber heitiđ „Góđur og fróđur“ og byggir á sýn skólans. Skólastefnan er skýr framtíđarsýn í anda lífsleikni, manngildis og hugmynda um ađ til ţess ađ ná árangri í skólastarfi ţurfi ađ hlúa ađ vellíđan og starfsánćgju bćđi nemenda og starfsmanna skólans. Ţađ eru forsendur fyrir góđum árangri í námi og starfi. 

 

Grćnfáninn

Í Brekkubćjarskóla er rekin öflug og skilvirk umhverfissterfna. Samstarf nemenda og starfsfólks hefur skilađ skólananum réttinum til ađ flagga Grćnfánanum, en hann er umhverfismerki sem nýtur virđingar víđa í Evrópu sem tákn um árangursríka frćđslu og umhverfisstefnu í skólum.

 

Skóli er líka hús

Brekkubćjarskóli starfar í húsi sem byggt hefur veriđ í fjórum áföngum. Kjarni hússins er frá árinu 1950 og hefur upphaflega húsinu veriđ breytt mjög mikiđ frá ţeim tíma. Vinnuađstađa nemenda og kennara er góđ; gott skólasafn, stór tölvustofa og sérgreinastofur. Skólinn hefur ađgang ađ Íţróttahúsinu viđ Vesturgötu til íţróttakennslu og sund er kennt í Bjarnalaug sem er innilaug. Skóladagvist og hluti myndmenntakennslu er til húsa í austurhluta Íţróttahússins í svonefndri „Ţekju.“

 

Skólinn í túni Brekkubćjar

Brekkubćjarskóli hét lengst af Barnaskólinn á Akranesi. Í nokkur ár hét hann Grunnskólinn á Akranesi en ţegar grunnskólar stađarins urđu tveir áriđ 1982 var Brekkubćjarskólanafniđ tekiđ upp. Skólinn stendur á gömlu túni Brekkubćjar og ţađan er nafngiftin komin.

 

Barnaskólinn tók til starfa haustiđ 1880 í nýju skólahúsi viđ götu sem dró nafn sitt af ţví, ţ.e. Skólabraut. Skólinn flutti í stćrra hús viđ sömu götu 1912 og ţar var hann til 19. nóvember 1950 ađ hann fluttist í núverandi húsnćđi sem síđan hefur veriđ byggt viđ ţrisvar sinnum. Nćstu árin eftir ađ fjölbrautaskóli var stofnađur og Gagnfrćđaskólinn á Akranesi lagđur niđur (1977) bćttust ţrír árgangar viđ í Brekkubćjarskóla og hefur hann síđan ţá veriđ heildstćđur grunnskóli međ tíu árganga, ţ.e. 1. til 10. bekk. Brekkubćjarskóli er einsetinn frá hausti 2001, ţ.e. allir nemendur hefja skóladag kl. 8 ađ morgni og hver bekkjardeild hefur sína stofu. Áriđ 2004 tók til starfa mötuneyti fyrir nemendur ţar sem bođiđ er upp á heita máltíđ í hádeginu.